ENDURFÆÐING
/ REBIRTH
Mokka Reykjavík 28/11/24-15/01/25
ENDURFÆÐING
/ REBIRTH
Sýningin á Mokka samanstóð af myndum sem ég málaði í bataferli frá krabbameini sem ég greindist fimm sinnum með á árunum 2014 til 2020. Líkt og krabbameinið eru verkin óútreiknanleg og fara sínu fram án þess að spyrja höfundinn leyfis. Þau eru merki um lífskraftinn sem í okkur býr og við megum gleðjast yfir, sama hvað tautar og raular.